Byrja að minnast á ánægjulegan sigur hjá okkur á móti Gróttu. Kannski ekki áferðarfallegasta knattspyrna í heimi en sigur engu að síður.
Svo vil ég minna menn á herrakvöld KR annað kvöld. Það byrjar kl. 20:30 og kostar 2.800 kr. inn. Innifalið í því er bjór/gos og hamborgari. Þetta verður eðalkvöld og vonandi mæta sem flestir KV menn og þá á ég aðallega við þá sem eru ekki í prófum.


