Posted on March 24th, 2012 by Stjórnin in Tilkynningar
Í gærkvöldi voru nýir KV búningar kynntir á Rauða ljóninu við hátíðlega athöfn. Mikil leynd hafði hvílt yfir nýju búningunum og mikil spenna ríkti meðal viðstaddra. Á meðfylgjandi mynd má sjá þá Gunna, Aron og Haffa. Rauða ljónið verður eins og áður hefur komið fram aðalstyrktaraðili KV í það minnsta næstu tvö árin og því við hæfi að kynna búninginn á Ljóninu sjálfu.
Gunni er í varabúningnum en Aron í aðalbúningnum.

No Comments »
Posted on March 23rd, 2012 by Palli in Tilkynningar
Í kvöld verða nýir keppnisbúningar KV fyrir komandi tímabil kynntir á Rauða ljóninu.
Haffi verður með góð tilboð á mat og drykk og þá verður spurningarkeppni á milli árganga. Þá væntum við þes að KV ultraz muni jafnframt tefla fram liði.
Þá verða nýir og stórglæsilegir aðal- og varabúningar kynntir við hátíðlega athöfn en mikil leynd hefur hvílt yfir dressinum.
Við hlökkum til þess að sjá sem flesta í kvöld. Herlegheitin byrja kl. 21:15. Allir velkomnir!
No Comments »
Posted on March 23rd, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Aron Steinþórsson, hjartaknúsari, segist styðja Stjörnustelpur.
Það var gott ár hjá mér í fyrra þar sem við urðum meistarar og líka Stjörnustelpur.
En af hverju Stjörnustelpur?
Ég fíla svona þegar litli gaurinn kemur á óvart. Komu svona bakdyramegin og mjög óvænt inn og skoruðu helling en voru líka þéttar aftast. Áfram Stjörnustelpur!
No Comments »
Posted on March 21st, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir

Valdemar mjög sposkur á svip
Það var létt yfir Valdemar Ásbjörnssyni, stjörnuframherja KV, þegar fréttamaður hitti hann á Ísgerðinni á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hann læddist aftan að grunlausu fórnarlambinu, greip um vömbina, hristi og sagði „mjólkurhristingur!! hehehehe“.
Aðspurður sagðist Valdemar hafa góða ástæðu fyrir að vera í svo góðu skapi en hann sagðist, mjög sposkur á svip, sitja á fyndnum brandara sem hann væri spenntur fyrir að segja. Það yrði þó að bíða betri tíma.
Sko ef við töpum leik í sumar, sem er náttúrulega ekki breik en segjum sem svo, þá förum við kannski á Rauða í gúff. Þá ætla ég að standa upp og segja hátt og snjallt yfir hópinn „Éta, það er það sem þeir geta – vinna, það er eitthvað minna!!“ hahaha sick fyndið sko.
Valdemar er laganemi á 25. aldursári. Stelpur, hann er ekki á lausu.
No Comments »
Posted on March 21st, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Það fór ekki fram hjá nokkrum manni er var viðstaddur æfingu Knattspyrnufélagsins í gærkvöld að knattspyrnubarnið Auðunn Örn Gylfason var í fýlu. Auðunn yrti ekki á nokkurn mann alla æfingu og þegar Uefa b þjálfarinn flautaði æfinguna af rauk hann heim í fússi.
Menn rak í rogastans enda fór óvenju vel á með mönnum á æfingu. Fréttamaður síðunnar hafði samband við heimili Auðuns og aðspurður sagði Gylfi sjálfur að Auðunn hefði læst sig inn í herbergi og neitað að koma út í allt kvöld. Blastaði bara rappartónlist eins og hann orðaði það sjálfur. Aðspurður hvað olli þá hafði Gylfi ekki svör á reiðum höndum en hafði sínar kenningar:
,,Það voru fiskibollur í kvöldmatinn og Auðunn litli kann ekki að meta slíkt. Hann neitaði að borða en þegar ég hótaði honum útivistarbanni lét hann sig hafa það að borða eina bollu. Hins vegar þvertók hann fyrir það að borða kartöflurnar með. Svo í morgun þegar ég skutlaði honum í skólann þá fékk hann ekki að vera frammí og það fór öfugt í hann. Hann setti bara heyrnartólinn á sig og yrti ekki á mig alla leiðina og neitaði að spenna beltið.”
Aðspurður hvaða uppeldisaðferðum Gylfi beitir þá stóð ekki á svörum.
,,Auðunn er á viðkvæmum aldri en það þýðir ekkert að gefa neitt eftir. Hann verður mér þakklátur síðar meir. Við erum fyrst og fremst foreldrar en ekki bestu vinir barnanna okkar.”
En fær Auðunn að mæta á æfingu á fimmtudaginn?
,,Við skulum vona það. Hann þarf samt fyrst að hengja upp úlpuna sína og þakka fyrir matinn” sagði Gylfi ákveðinn að lokum.
No Comments »