Posted on January 17th, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Náttúrulyf…náttúrulyf… hvaða djók er þetta? Það er búið að prófa þetta allt saman og það sem virkar er í dag bara kallað lyf!
Pælið í því.
No Comments »
Posted on January 15th, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Atli Valur Jóhannesson, vinstri bakvörðurinn knái í liði KV, segist undrandi og vonsvikinn með það sem hann kallar „ótrúlega vanvirðingu fyrir lágmarks hreinlætisstöðlum“ á KV Park.
Málið náði eyrum ritstjórnar þegar bent var á harðorða Twitterfærslu Atla um daginn.
@djAtli123 Blóð, sviti og hor á teppinu, menn míga og þvo sér ekki um hendurnar í snjónum. #ojbara #fuglaflensa #erKVsvona?
Við náðum tali af kappanum á ellefta tímanum í gærkvöldi, en hann var þá staddur á Næsta bar. „það er sko árið 2012, ekki 1612!“ sagði Atli myrkur í máli og ljóst að hann tekur þessi mál mjög alvarlega. „Það er eitt að vestin séu ekki þrifin fyrir hverja æfingu, ég skil það alveg, en þarf að vera lykt af þeim eins og af síðu nærbuxunum í óhreinatauinu á Grund? Ég sá Magnús Helgason pissa úti á velli eftir upphitun um daginn og svo fór hann bara beint aftur út á völl án þess að þvo sér um hendurnar, samt var snjór út um allt! Svo var Bjarki P svo þyrstur að hann fór að borða snjó sem var rétt hjá þar sem Magnús hafði pissað!“
En hvernig vill Atli að tekið sé á þessum málum? „Ég er með 7 atriða lista sem ég ætla að koma með á æfingu, svona þegar ég er aðeins betur kominn inn í hópinn. Ég vona að strákarnir hlusti á mig þó Davíð Birgisson hafi sagt mér að [ræskir sig] fokka mér um daginn þegar ég sagði honum að þvo sér um hendurnar“.

No Comments »
Posted on January 14th, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Pælið í því. Norður, suður, austur, vestur….
Af hverju vestur? Miðað við árangur sumarsins mæli ég með að við breytum þessu í „bestur“.
Pælið í því.
1 Comment »
Posted on January 14th, 2012 by Stjórnin in Tilkynningar
Við unnum í gær ágætan 4-2 sigur á liði KB. Aðstæður í Breiðholtinu voru vægast sagt erfiðar en sterkur vindur setti nokkuð strik í reikninginn. Við komumst snemma yfir í leiknum með mörkum frá Gunna og Dabba og útlit var fyrir stórsigur okkar manna. Hins vegar gerðumst við sekir um tvenn mistök er kostuðu okkur mörk og jöfnuðu þeir leikinn.
Dabbi kom okkur yfir fyrir lok hálfleiks og stóðu leikar því 3-2 er flautað var til hlés. Gunni skoraði svo fjórða mark okkar manna um miðjan síðari hálfleikinn er hann fylgdi eftir fastri aukaspyrnu Dabba sem markmaður heimaliðsins náði ekki að halda. Lokatölur því 4-2.
Byrjunarlið KV (4-2-3-1): Danni – Auðunn, Kalli, Danni, Atli – Skúli, Dóri Boga – Dabbi, Einar Bjarni, Aron – Gunni.
Bekkur: Maggi, Steinn, Ingvar, Óli, Gonni og Gummi
No Comments »
Posted on January 13th, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Hreinn Bergs, framherjinn knái í liði KV, segist hafa þungar áhyggjur af eineltisstefnu KV sem hann kallar „með hreinum ólíkindum“.
Hreinn telur hreinlega ólíðandi að svo virðist sem einungis þeir Óli í Smash og Geisla-Gonni verði fyrir einelti á fckv.com og krefst þess að öðrum sem sé sýnd sama virðing „enda man ég ekki betur en að einhvern tíman hafi verið talað um jafnrétti hér í félaginu!“
En hverju stingur Hreinn upp á? „sko það eru alveg strákar hérna í liðinu, aðrir en Óli og Gonni, sem hægt er að gera grín að. Ég nefni póstmanninn síkáta Davíð L. Birgisson, Egil – bróður Sigþórs Siðlausa og nýja strákinn Auðunn, sem er alveg fáránlega fyndinn.“ segir Hreinn ákveðinn og bætir við „svo finnst mér alltaf soldið fyndið þegar þið gerið grín að valda hehehe“
Lögfræðingur félagsins, Páll Kristjánsson hdl. gefur ekki mikið fyrir aðfinnslur Hreins. „síðast þegar ég vissi var málfrelsi í landinu og ef leikmenn ætla sér að vaða beint í fjölmiðla til að hafa áhrif á fjölmiðlaumfjöllun er ég ansi hræddur um að þeir þurfi að búa sig undir vonbrigði. En Hreinn getur þó huggað sig við að mér hafa borist til eigna þau tíðindi að fréttaflutningur af Valdemar Ásbjörnssyni muni aukast ef eitthvað er“.
No Comments »