Archive for the “Tilkynningar” Category

Vorboðinn ljúfi, Dabbi lidt, hefur tekið fram vespuna. Lidt þeytist um grænar grundir bæjarins og færir fólki glaðning, ábyrgðarbréf og stefnur.

Fréttamaður síðunnar mætti Lidt þar sem hann var staddur á landamærum Seltjarnarness og Vesturbæjar og tók hann tali.

“Þetta er sko alvöru tryllitæki. Ég dýrk’etta, þetta er svona alvöru latt. Mér finnst gaman að skransa og láta reykinn svona fara yfir fólk. Sumir verða fúlir, en mér er slétt, tek bara Eilann á þetta og dreg línu. Hér ræð ég!”

Aðspurður hvort að þetta sé eitthvað að heilla píurnar svaraði Litd rámri röddu.

“Gellurnar á B5 eru allavega að fíla Póstinn lidt. Ég lauma mér stundum í gallann þegar ég fer á djammið sagði Lidt áður en hann þaut af stað. Er á leiðinni í Ríkið, er með rukkun frá Motus sem á að fara á einhvern starfsmann.”

Comments No Comments »

Eins og áður hefur komið fram þá munum við á allra næstu dögum frumsýna nýja keppnisbúninga fyrir komandi tímabil. Aðalbúningarnir komu í hús í dag og fara fljótlega í merkingu. Varabúningarnir eru svo væntanlegir í næstu viku.

Að því tilefni höfum við ákveðið að setja gömlu búningasettin í sölu. Við munum selja svörtu mitre treyjurnar á 1.500 kr. en rauðu og hvítu varabúningana á 1.000 kr. Þá geta menn keypt eina af hvoru á 2.000 kr. sem er að sjálfsögðu kostaboð. Bláu og gulu markmannstreyjurnar fara á 1.000 kr. en sú rauða á 1.500 kr.

KV megastore mun væntanlega hefja sölu í næstu viku en gefur nú dyggum stuðningsmönnum tækifæri að panta treyjur í forsölu og losna þannig við örtöð á sölustað. Þannig geta menn pantað sér sérstök númer. Er það gert með því að senda mail á pall@krst.is.

Að gefnu tilefni er sérstaklega tekið fram að treyjur nr. 2 fara ekki í almenna sölu. Að venju fara treyjur nr. 2 í svokallað frægðarhöll KV. Með því vill félagið sérstaklega heiðra Pál Kristjánsson, einn af okkar allra ástælustu leikmönnum, en Páll gerði garðinn frægann með KV snemma á þessari öld.

Comments No Comments »

20:45

Comments No Comments »

Miðvikudagur: Æfing 20:00
Fimmtudagur: Frí
Föstudagur: Æfing – nánari tímasetning síðar
Helgin: Planið verður klárt á föstudag

Comments No Comments »

Á næstu dögum munum við kynna nýjan keppnisbúning. Því er ekki úr vegi að ryfja upp þær keppnistreyjur sem KV hefur leikið í síðustu 7 árin. Um er að ræða 5 keppnisbúninga og viljum við fá menn til kjósa flottasta búninginn í könnuninni hér til hliðar:

Comments No Comments »