Archive for the “Liðsfréttir” Category

Skúli Jónsson miðvallarleikmaður Vesturbæjarliðsins átti gott spjall við blaðamann síðunnar eftir æfingu Knattspyrnufélagsins í gær og leyfði landsmönnum að kynnast mögnuðu hugsunarflæði sínu. Hér að neðan má lesa viðtalið sem er vægast sagt athyglisvert.

„Það eru hlutir að birtast hér sem áður voru bara hugsanir og tilfinningar. Það sem fólk getur tekið með sér eða lært af er að ef maður hugsar bara jákvætt – við gerðum það. Allt svona – neikvæðni *bíb* sem því fylgir og allt, bara, ekki leyfa því að gróa. Bara að vera ógeðslega pósitívur, sérstaklega þegar maður hugsar um hvað maður er að fara í.”


„Vera ógeðslega þakklátur fyrir að fá að spila hérna og fá að vera hérna. Geðveikar æfingar. Gratitúd fyrir það, að vera hérna. Njóta þess að fá að taka einn svona púls í 90 mínútur. Þó þú deyir hérna á vellinum, þá deyrðu lifandi. Það voru allir í fílingnum, ekkert að hugsa um hvort við myndum vinna eða *bíb* skiluru. Og njóta þess að vera á þessum velli.”


„Svo unnum við vinnuna okkar mjög vel. Þjálfararnir með Sideline-ið sitt og analýserandi endalaust, frábært team þar á ferð.”

„Við vorum að klifra þetta fjall og það voru tvær leiðir í dag. Önnur var *bíb* og hin var upp. Bara ógeðslega gaman og þetta átti bara að gerast einhvern megin. Mér líður eins og Morfeus. Mér líður ógeðslega vel í þessari keppni, alveg frábær.”

Fréttamaður síðunnar: Hungrið svo sannarlega til staðar og kraftur í hópnum?
„Já, já. Við höfum sem betur fer tvo daga og tökum klukkutíma í að fagna þessu og vera glaðir og allt það. Svo bara dettum við aðeins í chill-zone og svo byrjum við aðeins að analýsera þetta, strax í kvöld í raun.”

 „Þekkjum auðvitað andstæðinginn vel enda búnir að spila oft á móti þeim og við erum betri en þeir ef eitthvað er. Verðum að halda áfram á þessari braut og vera glaðir, njóta hvers leiks. Sjá svo hvað gerist.”

Svo mörg voru þau orð!

Comments 1 Comment »

Góðvinur heimasíðunnar, ÖkuÞór eða Óli í Smash, hefur heldur Pétur undið kvæði sínu í kross og hafið af fullum þunga æfingar fyrir bikarmótið í Model fitness. Fréttamaður síðunnar hafði samband við Ökuþór nú á ellefta tímanum í morgun og hreinlega spurði, af hverju?

,,Sko þetta á rosavel við mig. Ég var aldrei þessi fitness gæi en þetta módel fitness er algjör snilld. Gamli heimavöllur eins og ég kýs að kalla það. Mér líður svo vel í þessu. Limaburður verður að vera fallegur og sýnt er fram á hæfileika til fyrirsætustarfa. Skiluru týpuna, ég hef bæði.

Ég meina ég er með fallega líkamsbyggingu, svona hóflega stæltan sem og fallega tónaðan og samræmdan vöxt. Þetta er bara ég. Ég meina þetta er bara ég á google!“

En hvernig fílar Ökuþór sig í svona einstaklingsíþrótta?

,,Sko ég er eini gaurinn í þessu í dag. Það er samt nóg af blómarósum, svona alvuru megabeibum. Gömul vinkona dró mig með sér í þetta og ég sé sko alls ekki eftir þessu. Við erum svona lyftingarfélagar. Ég er aðeins að vinna í bakvöðnum og rófunni. Ég er með stærsta rófubein á Íslandi. Það er svona leynitrikkið mitt. Beygi mig fram og spenni rófubeinið ýkt mikið.“

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skiluru megabeibin! hrópaði Ökuþór að ljósmyndara síðunnar

Comments No Comments »

Aron Steinþórsson, hjartaknúsari, segist styðja Stjörnustelpur.

Það var gott ár hjá mér í fyrra þar sem við urðum meistarar og líka Stjörnustelpur.

En af hverju Stjörnustelpur?

Ég fíla svona þegar litli gaurinn kemur á óvart. Komu svona bakdyramegin og mjög óvænt inn og skoruðu helling en voru líka þéttar aftast. Áfram Stjörnustelpur!

Comments No Comments »

Valdemar mjög sposkur á svip

Það var létt yfir Valdemar Ásbjörnssyni, stjörnuframherja KV, þegar fréttamaður hitti hann á Ísgerðinni á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hann læddist aftan að grunlausu fórnarlambinu, greip um vömbina, hristi og sagði „mjólkurhristingur!! hehehehe“.

Aðspurður sagðist Valdemar hafa góða ástæðu fyrir að vera í svo góðu skapi en hann sagðist, mjög sposkur á svip, sitja á fyndnum brandara sem hann væri spenntur fyrir að segja. Það yrði þó að bíða betri tíma.

Sko ef við töpum leik í sumar, sem er náttúrulega ekki breik en segjum sem svo, þá förum við kannski á Rauða í gúff. Þá ætla ég að standa upp og segja hátt og snjallt yfir hópinn „Éta, það er það sem þeir geta – vinna, það er eitthvað minna!!“ hahaha sick fyndið sko.

Valdemar er laganemi á 25. aldursári. Stelpur, hann er ekki á lausu.

Comments No Comments »

Það fór ekki fram hjá nokkrum manni er var viðstaddur æfingu Knattspyrnufélagsins í gærkvöld að knattspyrnubarnið Auðunn Örn Gylfason var í fýlu. Auðunn yrti ekki á nokkurn mann alla æfingu og þegar Uefa b þjálfarinn flautaði æfinguna af rauk hann heim í fússi.

Menn rak í rogastans enda fór óvenju vel á með mönnum á æfingu. Fréttamaður síðunnar hafði samband við heimili Auðuns og aðspurður sagði Gylfi sjálfur að Auðunn hefði læst sig inn í herbergi og neitað að koma út í allt kvöld. Blastaði bara rappartónlist eins og hann orðaði það sjálfur. Aðspurður hvað olli þá hafði Gylfi ekki svör á reiðum höndum en hafði sínar kenningar:

,,Það voru fiskibollur í kvöldmatinn og Auðunn litli kann ekki að meta slíkt. Hann neitaði að borða en þegar ég hótaði honum útivistarbanni lét hann sig hafa það að borða eina bollu. Hins vegar þvertók hann fyrir það að borða kartöflurnar með. Svo í morgun þegar ég skutlaði honum í skólann þá fékk hann ekki að vera frammí og það fór öfugt í hann. Hann setti bara heyrnartólinn á sig og yrti ekki á mig alla leiðina og neitaði að spenna beltið.”

Aðspurður hvaða uppeldisaðferðum Gylfi beitir þá stóð ekki á svörum.

,,Auðunn er á viðkvæmum aldri en það þýðir ekkert að gefa neitt eftir. Hann verður mér þakklátur síðar meir. Við erum fyrst og fremst foreldrar en ekki bestu vinir barnanna okkar.”

En fær Auðunn að mæta á æfingu á fimmtudaginn?

,,Við skulum vona það. Hann þarf samt fyrst að hengja upp úlpuna sína og þakka fyrir matinn” sagði Gylfi ákveðinn að lokum.

Comments No Comments »