Archive for the “Leikskýrslur” Category

KV sigraði Ægi 4-2 í fyrstu umferð bikarsins á laugardag. Leikið var í Þorlákshöfn og komust heimamenn yfir í tvígang 1-0, og 2-1 en í góðum síðari hálfleik sigldu Vesturbæingar fram úr.

Fyrsta mark var sjálfsmark en eftir fylgdu mörk frá Brynjari Orra Bjarnasyni og Valdemari Ásbjörnsson en hann hefur verið baneitraður að undanförnu og raðað inn mörkunum. Það var svo fyrirliðinn Aron Steinþórsson sem innsiglaði sigurinn.

KV mætir Aftureldingu að Varmá í næstu umferð.

Comments 1 Comment »

Valde og Beggi áttu góðan leik fyrir KV

Vesturbæingar kræktu í þrjú mjög góð stig í gær þegar liðið lagði Lárus Orra Sigurðsson og félaga í KF (KS/Leiftri) 2-1 í veðurblíðunni á iðagrænum KV Park.

Valdemar Hansen skoraði fyrsta markið snemma leiks eftir frábæra sendingu frá Arnari og hefur þá skorað þrjú mörk í síðustu þremur leikjum. Valdemar hefur verið í ströngu prógrammi við að skafa af sér majónesið að undanförnu og það virðist vera að bera ávöxt.

Konráð kom KV svo í 2-0 skömmu síðar með flottu skoti í kjölfar lúmskrar aukaspyrnu Arons. Gonni er sennilega fyrsti leikmaðurinn til að skora mark í deildarbikarnum sem man ekki eftir því hvernig hann komst heim kvöldið áður.

Staðan var 2-0 í hálfleik en gestirnir minnkuðu muninn strax í upphafi síðari hálfleiks og lágu nokkuð á þéttri vörn Vesturbæinga það sem eftir lifði leiks. Hurð skall nærri hælum þegar Maís þurfti að bjarga á línu en Norðlendingar náðu ekki að koma boltanum inn og flottur sigur vannst.

Brynjar Orri Bjarnason (Brynjar Már Sævarsson) lék sinn fyrsta leik fyrir liðið og komst nærri því að skora í tvígang en vippum hans yfir markmanninn var í bæði skiptin bjargað á línu.

Comments 1 Comment »

Það er erfitt að kyngja tapinu í gær gegn frekar slöku liði Víðis. Eins og einn mætur KV-maður sagði um daginn gefur 3-0 ekki rétta mynd af úrslitum leiksins.

Næsti leikur okkar er á þriðjudaginn þar sem við tökum á móti toppliði Víkings. Miðað við síðasta leik liðanna er ljóst að við eigum góðan séns á stigum og gerum okkar besta til að halda lífi í möguleikum okkar. Staðan er vissulega slæm en ef eitthvað er harðbannað í KV er það að gefast upp og hætta að njóta þess að spila fótbolta. Þó við séum með bakið upp við vegg er mitt sumar, við erum í stórskemmtilegri deild og það er nóg eftir. Við gerum eins gott úr þessu og við mögulega getum svo við getum amk. verið stoltir af sjálfum okkur í lok sumars.

Næsta æfing er á föstudagskvöldið, nákvæm tímasetning kemur á netið innan tíðar.

Comments Comments Off

Það var undarlegur leikur sem talsverður fjöldi áhorfenda varð vitni að á glæsilegum Vilhjálmsvelli á laugardaginn. Í upphafi lékum við 5-3-2 leikkerfi með þá Snorra og Dóra Árna uppi á topp. Dóri og Halldór Ágúst komust í hálffæri í upphafi leiks en í fyrstu sókn heimamanna skoruðu þeir eftir langt innkast. Nýting andstæðinga okkar úr föstum leikatriðum er farin að jafnast á við Clyde „the glyde“ Drexler í troðslum á sínum tíma.

Eftir markið sóttum við í okkur veðrið og mátti engu muna að klaufaskapur í vörn Hattar endaði með sjálfsmarki en léleg sending til baka fór í stöngina og Dóri Árna var örlítið of seinn að ná frákastinu. Um miðjan fyrri hálfleikinn lét Egill svo reka sig út af fyrir ergelsi þegar hann lá ofan á sóknarmanni Hattar. Sá gaf honum olnbogaskot sem dómarinn sá ekki og Egill hrinti honum þá í jörðina og var réttilega rekinn út af. Línuvörðurinn kallaði dómarann þá til sín og benti á að dæma ætti vítaspyrnu í leiðinni og þeir nýttu hana til að komast í 2-0. Fyrir lok hálfleiksins opnaðist vörnin okkar mjög illa vinstra megin og þeir fengu ókeypis færi sem var mjög vel klárað í nærhornið og staðan 3-0 í hálfleik. Þá hafði Björn Ívar m.a. svo gott sem handleggsbrotið markvörð Hattar með frábæru skoti og við átt 5-6 þokkaleg færi sem því miður tókst ekki að nýta.

Síðari hálfleikur var skiljanlega erfiður manni færri en menn eiga hrós skilið fyrir að vera duglegir að sækja og setja pressu á heimamenn sem hefði getað endað með mörkum. Það var þó Vilmar félagi okkar sem kom Hetti í 4-0 með fínu viðstöðulausu skoti áður en Ingvar skoraði með hörkuskalla eftir frábæra sendingu frá Njálssyni. Eskfirðingurinn fljúgandi þar með orðinn markahæstur KV manna á tímabilinu. Fallegasta sókn leiksins hefði mátt enda með marki en þar hafði Einar Njáls spólað sig úr vörninni fram allan völlinn, gaf á Snorra (með yfirburðum maður leiksins) sem hælaði hann aftur inn fyrir vörnina en skot Einars með vinstri rétt missti af Sammaranum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við töpum leik vegna þess að við missum mann út af . Heldur ekki í fyrsta skipti sem menn standa sig margir hverjir með prýði en koma heim tómhentir. Það sem ég vil þó taka út úr þessum leik er mun heldur jákvætt en neikvætt. Snorri var til fyrirmyndar og átti með betri leikjum sem KV maður hefur átt í sumar. Var á fullu í 90 mínútur, spilaði mjög einfaldan einnar eða tveggja snertinga bolta og högnuðust miðjumenn okkar mikið á því að geta fengið boltann aftur í uppbyggingu sókna. Einar Njáls var áberandi góður hægra megin og þeir Björn Ívar, Beggi og Halldór Ágúst eiga hrós skilið fyrir mikla baráttu á miðjunni. Að mínu mati bestu leikur Halldórs í sumar. Einar Óli vann sína 50 skallabolta og Danni greip oft vel inn í í markinu.

Annars er það að frétta af leikmönnum að Ari Gísla lék sinn fyrsta leik fyrir félagið og stóð sig vel vinstra megin, þó hann hafi verið ansi stífur eftir föstudagsæfinguna. Halldór Svavar lenti illa eftir samstuð og sleit að líkindum krossband. Við sendum honum okkar bestu kveðjur og finnum til með honum, enda er þetta í annað sinn sem krossband fer í vinstra hnénu.

Næsti leikur er á miðvikudagskvöldið gegn Víði. Nú er einfaldlega komin upp sú staða að menn verða hver og einn að hugsa um veru KV í 2. deild. Það tók 5 ár og mikla vinnu að komast hingað og hér vilja örugglega allir vera frekar en í 3. deild. Ef menn geta ekki gírað sig upp í leik gegn Víði, liði sem við höfum unnið áður og eigum að vinna, er eitthvað mikið að. Nú þurfa menn að rifja upp stemninguna í mestu baráttuleikjum KV og endurtaka leikinn.

Það hefur verið Björn Berg fyrir fckv.com

Comments Comments Off

Siggi Max biður að heilsa

Þrátt fyrir augljós batamerki frá síðasta heimaleik fengum við ekkert út úr jöfnum og spennandi leik við frekar dapurt lið Hamars.

Fyrst að því neikvæða. Okkur tókst ekki að nýta þau færi sem við fengum í leiknum og misstum leikmann út af í fyrri hálfleik. Þar með er það neikvæða þó svo gott sem upp talið og er það ánægjuleg og upplífgandi staðreynd. Baráttan í liðinu var til fyrirmyndar og voru ákveðnir menn að leika sinn besta leik í sumar. Danni skellti í lás og var mjög nálægt því að verja sigurmarkið. Erik og Einar Óli hikstuðu örlítið í upphafi þegar langar kýlingar sluppu aðeins í gegn en áttu restina af leiknum. Alli er að komast í betra leikform og stýrði miðjunni mjög vel og það var sérlega gaman að sjá að Aron virðist vera kominn í topp form og var á fleygiferð allt til leiksloka.

Næsti leikur er á Egilsstöðum og þar á eftir eigum við þrjá heimaleiki í röð. Nú er komið að því að hala inn stig. Þó staðan sé erfið er hún alls ekki ómöguleg. Það jákvæða við þetta allt saman er að við vitum að við eigum góðan séns í öll lið í þessari deild og spilamennskan og formið er að batna.

Comments Comments Off