Íslandsmótið hefst á laugardaginn kl. 14 þegar KFR lítur í heimsókn í Vesturbæinn.
Vesturbæingar ætla sér stóra hluti í sumar og skiptir miklu máli að byrja vel. Til að styrkja varnarleik liðsins sá gamla varnartröllið Atli Eðvaldsson um æfingu miðvikudagsins. Mál manna var að ábendingar Atla komi til með að reynast afar vel og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
KV heldur úti tveimur körfuknattleiksliðum, í 2. deild og utandeild. Bæði lið hafa staðið sig með miklum sóma í vetur en fyrr í dag lék utandeildarliðið úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í utandeildarkörfu. Pétur “crazy P” Einarsson, gaf tóninn með þristi neðan úr iðrum helvítis strax í upphafi og aftur var ekki snúið. Þó tæpt hefði staðið þegar um 5 mínútur voru til leiksloka kláruðu Vesturbæingar leikinn með bravör og lyftu stoltir dollunni í leikslok.
Nokkur fjöldi leikmanna knattspyrnuliðs KV hvöttu sína menn úr stúkunni og herma heimildir síðunnar að sigrinum verði fagnað fram að hádegi á morgun um allan Vesturbæ.
Í öðrum fréttum er að KV og Reynir gerðu 2-2 jafntefli í deildarbikarnum í dag þar sem Gunnar Kristjánsson og Brynjar Orri Bjarnason skoruðu mörk Vesturbæinga. Daníel Kristinsson og Halldór Bogason fengu báðir að líta rauða spjaldið í leik þar sem dómarinn lék því miður lykilhlutverk.
Varnartröllið Tómas Haiken Agnarsson er mikill tónlistaráhugamaður. Sjálfur lærði hann á bariton í tónlistarskóla Grandaskóla og spilaði jafnframt með lúðrasveit Vesturbæjar við góðan orðstýr. Fréttamaður síðunnar sló á þráðinn til Tomma, eins og vinir hans kalla hann, og spurði hann út í sína uppáhalds tónlistarmenn og helstu áhrifamenn innan bransans.
,,Uppáhalds tónlistarmaðurinn minn er án nokkurs vafa bandaríska idolið Clay Aiken eða Haiken eins og ég kalla hann. Þá er ég að vísa í hökuna mína sem er mitt helsta einkennistákn. Ég reyni yfirleitt að tengja idolin mín við mig sjálfan og finna sjálfan mig í þeim. Hann er með æðislega rödd og ég hef verið dolfallinn yfir honum síðan ég sá hann fyrst á stóra sviðinu.“
,,Hér heima er það tónlistarkonan Anna Claessen. Kannski ekki margir sem þekkja hana en við í „undergrándinu“ þekkjum hana vel. Hún er svona ,,alltmúlígt músíkant“. Ég hreinlega elska lagið hennar Blonde in Disguise en það sló eftirminnilega í gegn hér um árið. Myndbandið er líka mjög gott, flottir dansarar og bara gordjöss í alla staði.“
En er eitthvað sem Tommi vill segja að lokum?
,,Ég meina þegar Laugi hætti þá varð bara svona flótti. Ég, Árni og fleiri sem höfðum verið þarna lengi saman ákváðum að hætta. Þetta var nú kannski ekki beint sameiginleg ákvörðun,, en það varð svona hópflótti. En jú mér líst bara vel á framhaldið.”
Þá bað Tommi okkur um að setja link inn með laginu góða og höfum við ákveðið að koma til móts við Tomma í þeim efnum.
Elín Hirst, fjölmiðlakona og móðir, tilkynnti nú á ellefta tímanum að hún sæktist ekki eftir kjöri í embætti forseta Íslands. Ákvörðunin kom flatt upp á menn, en flatast þó á son Elínar, Stefán.
„Þetta er sick, ég ætlaði að vera svona semi Harry Bretaprins þarna, svona alvöru gemsi“ sagði Stefán í samtali við fréttamann síðunnar. Hann hafði rennt hýru auga til vínkjallarans, en þar átti víst að vera hægt að koma fyrir bedda og þráðlausu neti „sem er semí nóg í FIFA og blend“
Stefán hafði séð fyrir sér hið ljúfa líf á Bessastöðum. „Sko það er alveg kominn tími á svona alvöru prinsadæmi hérna á Íslandi. Dalla og Tinna eru minnstu gellur í heimz og þessi sköllótti þarna annarar hvorrar þeirra, æ þessi sem er eitthvað PR drasl, hann er enginn gemsi sko. Ég hefði verið svona Christian Bale í Batman gemsalegur þarna, svona Qatar Prins típens. Sérðu ekki Lidt, Felguna og Bingóinn í einhverjum forsetaveislum með mér að klípa í rassinn á einhverjum prinsessum? haha sick maður.“
Að lokum tók Stefán svo fram að að sjálfsögðu hefði karfa verið sett yfir bílskúrinn.
Magnús Helgason hefur verið talsvert frá það sem af er vetri. Fyrst vegna meiðsla, svo búflutninga, því næst ástar en nú síðast vegna meiðsla. Fréttamanni síðunnar þótti mikið til koma og hafði því samband við Magnús nú á ellefta tímanum í morgun og spurði hann út í eftirminnilegustu meiðslin og það stóð svo sannarlega ekki á svörum.
„Það var þegar ég fékk í´ann í Hagaskóla hérna um árið“ sagði Felgan sársaukafullri röddu.
Nú hvað gerðist farðu nánar í þetta kauði?
,,Sko ég var ýkt stór á þessum árum. Var svona að lyfta með Eggerti í leikfimi. Við vorum trylltir í lóðunum og vorum að öskra svona og spegla okkur (innskot blaðamanns: Eggert er strákurinn sem mætti á eina æfingu í vetur). Þá tók ég upp af alefli tvö handlóð. Ég grýtti þeim upp fyrir höfuð og lamdi þeim svo til baka. Þá vildi bara svo óheppilega til að typpalingurinn minn varð á milli sem og hægra eistað. Þetta var alveg hruttalega vont, vægast sagt“ sagði Felgan og það mátti greina angist í andliti Felgunar er hann rifjaði þetta upp.
En hafði þetta einhverjar varnlegar afleiðingar?
,,Það er of snemmt að segja til um það. Ég varð verulegar blár þarna í‘onum og marðist töluvert. Þá er ég ekki frá því að hægra eistað sé öllu minna en það liggur allavega neðar enn þann dag í dag. En ég er allur kominn á fullt aftur og þessi meiðsli há mér ekki lengur.
En hvað er að frétt af Felgunni núna?
,,Allt það besta bara. Kallinn er meiddur og kominn með svona tagl“