Posted on February 22nd, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir

Óli Bingókúla er 24 ára gamall í dag og er það vel. Vaki yfir honum allir góðir englar. En hvað ætlar Óli að gera í tilefni dagsins? Fréttamaður síðunnar hleraði bingókúluna nú á ellefta tímanum og það er ljóst að það verður nóg að gera.
Það er náttúrulega öskudagur þ.a. ég mun klæða mig upp sem svona svertingjarappari. Ætla að vera mjög kúl. Ég og Óli í Smash erum búnir að vera undirbúa daginn og ætlum að vera strákarnir í Bláum Ópal. Þeir voru með flott rapparaatriði í Júrovísjónkeppninni. Ég ætla að vera Kristmundur Axel en Óli ætlar að vera Óli 170, sem er eiginlega svona eins og góður vinur okkar hann Óli 107 uppáhaldsrrapparinn hans Bívars.
Við ætum bara að ganga í verslanir sem eru með svona töffaraföt og ætlum að rappa. Við röppum bara á íslensku og ég held að við munum rappa „Stattu upp fyrir sjálfum þér“. Mér finnst boðskapurinn flottur. Svo ætla ég líka að rappa lag sem ég samdi um pabba en það er mjög líkt laginu hans Kristmundar sem sló í gegn í fyrra. Sami taktur og flæðið er mjög nett.
En ekkert afmæli er almennilegt án veislu, hvað stendur svo til í kvöld?
Þetta byrjar á markaveislu á æfingunni klukkan 8 hehe, nei ég segi svona. Þetta verður bara beisik, Óli 170, Gonni, Maggi Felga og Hreinn ætla að kíkja í heimsókn, við dettum í eina heimabakaða pizzu með extra beikoni og svo verður farið í bæinn í leit að þrauli! En ég má ekki vera lengi að í kvöld, það er dönskupróf í fyrramálið.
No Comments »
Posted on February 20th, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Davíð Birgisson, sóknarmaðurinn knái í liði KV, er maðurinn sem tryggir að pósturinn skili sér alltaf í tæka tíð.
„Maður er að sendast með mikilvæg ábyrgðarbréf, rjúkandi heitar sætabrauðslengjur og allt þar á milli og þá borgar sig að vera snar í snúningum“ segir Davíð glaður en ákveðinn, en hann fær afnot af skellinöðru í sumar.
„Það hefur sína kosti og galla. Í bílnum get ég verið með Conga súkkulaði og appelsín í gleri en eiginlega ekki á hjólinu“.
En hvers vegna er þá verið að setja hann á svona skutlu? „Maður er svo snar í snúningum þannig. Svo fæ ég bjöllu svo fólk viti að ég er að koma og er duglegur að nota hana“
Bjallan hefur þó líka annað í för með sér, er það ekki Davíð? „hehe jú maður er orðinn svona hálfgerð cult týpa í vesturbænum, krakkarnir heyra lætin, hlaupa oft við hliðina á mér og hvetja mig áfram, það er alveg gaman sko. En þess vegna er líka mikilvægt að vera með hjálm, maður er náttúrulega viss fyrirmynd.
No Comments »
Posted on January 29th, 2012 by Stjórnin in Liðsfréttir
Sú var tíðin að forsvarsmenn Knattspyrnufélags Vesturbæjar höfðu helst áhyggjur af því, í samskiptum sínum við Áfengis og tóbaksverslun ríkisins, að leikmenn undir aldri væru afgreiddir. Nú er vandinn hins vegar annars eðlis.
Stjörnuleikmaður KV, Geisla-Gonni, hefur nú samfleytt í 5 ár ekki geta mætt á réttum tíma á æfingar þar sem hann er alltaf í vinnunni þar til 2-3 mínútur eftir að æfingar hefjast. Sökum þessa hefur Gonni ekki náð að hita upp með félögum sínum á æfingum sem eykur á meiðslahættu. Það minnkar um leið möguleika liðsins, enda um lykilmann að ræða.
Heimasíðan hefur fyrir því öruggar heimildir að Páll Kristjánsson, formaður félgsins, hafi ritað bréf til verslunarstjóra ÁTVR á Seltjarnarnesi þar sem biðlað er til þeirra um að loka verslunum fimm mínútum fyrr.
Ekki hefur fengist staðfest að um sé að ræða herkænskubragð af hálfu þeirra Seltirninga sem styðja Gróttu, en það þykir ólíklegt þar sem þeir eru víst báðir bindindismenn.
No Comments »