Author Archive

Það hefur vart farið fram hjá nokkrum manni að heimasíðan var “hökkuð” af óprúttnum aðilum en nú er komin á fullt aftur.
Næsta laugardag hefjum við KV -menn leik í 2. deildinni er KFR kemur í heimsókn í Frostaskjólið.
Þessa dagana stendur yfir sala á ársmiðum og geta áhugasamir keypt af leikmönnum liðsins eða forráðarmönnum. Miðinn kostar 5.000 kr.

Áfram KV

Comments No Comments »

Í kvöld verða nýir keppnisbúningar KV fyrir komandi tímabil kynntir á Rauða ljóninu.
Haffi verður með góð tilboð á mat og drykk og þá verður spurningarkeppni á milli árganga. Þá væntum við þes að KV ultraz muni jafnframt tefla fram liði.
Þá verða nýir og stórglæsilegir aðal- og varabúningar kynntir við hátíðlega athöfn en mikil leynd hefur hvílt yfir dressinum.
Við hlökkum til þess að sjá sem flesta í kvöld. Herlegheitin byrja kl. 21:15. Allir velkomnir!

Comments No Comments »

Við veljum 16 manna hóp í leikinn á morgun. Það er mæting kl. 9:30 í Egilshöll. Menn taka með sér svartar stullur og sokkar. Hópinn skipa:

Aron, Auðunn, Danni (m), Danni, Dabbi, Einar Bjarni, Einar Már, Dóri Boga, Gonni, Gunni, Hreinn, Ingvar, Jón Kári, Skúli, Kalli, Tommi

Comments No Comments »

Hvorki fleiri né færri en sjö leikmenn hafa gengið frá félagsskiptum yfir í KV á undanförnum dögum. Í dag var gengið endanlega frá félagsskiptum þeirra Jóns Kára og Einars Bjarna úr Gróttu í KV en það hefur haft töluverðan aðdraganda.
Í gær var svo endanlega gengið frá skiptum þeirra Atla Jónasar og Halldórs Bogasonar úr KR í KV. Halldór kemur á láni en hann var einmitt á láni hjá Aftureldingu í fyrra.
Þá gekk Auðunn frá félagsskiptum úr KR en hann var einungis á lánssamningi í fyrra og Atli Valur skipti jafnframt til okkar frá KR.
Að endingu skipti Guðmundur Örn til okkar frá Gróttu en hann er þó KR-ingur að uppruna eins og öllum er kunnugt um.
Við bjóðum þessa heiðursmenn alla velkomna í félagið. Þeir hafa nú allir æft með okkur í vetur en eru nú loks formlegir félagsmenn.

Comments No Comments »

Fyrsti æfingaleikur ársins verður á föstudaginn kemur er við heimsækjum KB í Breiðholtið.
Fram að þeim leik æfum við mánudag, þriðjudag og fimmtudag kl. 20:00.

Comments No Comments »