Author ArchiveÁgúst „Ölmóður“ Ingvarsson, videómógúll, hefur opnað glæsilega heimasíðu þar sem hann flaggar efni sínu. Slóðin á síðuna er www.agustingvarsson.is Nýjasta myndband kappans er frá æfingaleik KV og 2. flokks KR um daginn. Njótið. Meðfylgjandi mynd birtist nú á ellefta tímanum á vefsíðunni eyjapeyjar.is. Þar sést Björn Berg taka í hönd Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. Við höfum ekki fengið staðfest að um formlegar viðræður sé að ræða en sumir vefmiðlar ganga svo langt að halda því fram að Björn sé þessa stundina í læknisskoðun hjá ÍBV.
Páll leggur skóna á hilluna – SpjaldaferillPosted on February 16th, 2011 by Björn Berg in LiðsfréttirÍ framhaldi af frétt um að einn ástsælasti sonur KV, Páll „sem áll“ Kristjánsson, hafi ákveðið að leggja skóna á hilluna hefur ónefndur leikmaður tekið saman opinberan spjaldaferil kappans í deildar- og bikarleikjum. Þetta er svo sannarlega glæsileg lesning, sérstaklega ef tekið er mið af því hve fáa leiki Páll lék á þessum árum. Vegna veðurs fellur æfing kvöldsins niður. |








Entries (RSS)