Posted on April 7th, 2011 by Björn Berg in Tilkynningar
Síðunni hefur borist eftirfarandi tilkynning frá Guðmundi Pétri Sigurðssyni, stormsenter:
Hann byrjaði.
kveðja,
Gonni
No Comments »
Posted on March 28th, 2011 by Björn Berg in Leikskýrslur

Valde og Beggi áttu góðan leik fyrir KV
Vesturbæingar kræktu í þrjú mjög góð stig í gær þegar liðið lagði Lárus Orra Sigurðsson og félaga í KF (KS/Leiftri) 2-1 í veðurblíðunni á iðagrænum KV Park.
Valdemar Hansen skoraði fyrsta markið snemma leiks eftir frábæra sendingu frá Arnari og hefur þá skorað þrjú mörk í síðustu þremur leikjum. Valdemar hefur verið í ströngu prógrammi við að skafa af sér majónesið að undanförnu og það virðist vera að bera ávöxt.
Konráð kom KV svo í 2-0 skömmu síðar með flottu skoti í kjölfar lúmskrar aukaspyrnu Arons. Gonni er sennilega fyrsti leikmaðurinn til að skora mark í deildarbikarnum sem man ekki eftir því hvernig hann komst heim kvöldið áður.
Staðan var 2-0 í hálfleik en gestirnir minnkuðu muninn strax í upphafi síðari hálfleiks og lágu nokkuð á þéttri vörn Vesturbæinga það sem eftir lifði leiks. Hurð skall nærri hælum þegar Maís þurfti að bjarga á línu en Norðlendingar náðu ekki að koma boltanum inn og flottur sigur vannst.
Brynjar Orri Bjarnason (Brynjar Már Sævarsson) lék sinn fyrsta leik fyrir liðið og komst nærri því að skora í tvígang en vippum hans yfir markmanninn var í bæði skiptin bjargað á línu.
1 Comment »
Posted on March 27th, 2011 by Björn Berg in Tilkynningar
Eftir leikinn við KF í dag skundum við niður í bæ. Gonni var á árshátíð ÁTVR í gær þannig að við byrjum á að sækja hann í Fishersund og förum svo á English Pub þar sem hinn olíuborni Stefán “Hist og her” Friðriksson verður spyrill.
Það dettur kannski eins og ein spurning um Arsenal í hús.
Sjáumst kl. 20:00 á English.
Nefndin
1 Comment »
Posted on March 21st, 2011 by Björn Berg in Gamalt og gott
Nú bregðum við okkur niður minningarstíg og rifjum upp nokkur móment úr sögu KV. Að þessu sinni eru það meiðslin sem leikmenn hafa orðið fyrir í gegnum tíðina.
5. Stefán Hirst Friðriksson – Snúinn ökli
Markvörðurinn og prikið Stefán Hirst missti nokkra leiki úr tímabili þar sem hann missteig sig að hætti KV manna í brekkunni á Þjóðhátíð í Eyjum. Þetta voru þó ekki einu meiðsli kappans. Hann fékk eitt sinn klaufalegt mark á sig á æfingu og kýldi stöngina með þeim afleiðingum að hann brákaðist og var fjarri góðu gamni um tíð, en gat þó spilað FIFA.
4. Hannes Bjartmar Jónsson – Sprunginn sekkur
Fallbyssan Jökull Elísabetarson, leikstjórnandi Íslandsmeistara Breiðabliks, hefur verið tíður leynigestur á æfingum KV í gegnum árin. Það er þó ljóst að Hannes nokkur Hvergerðingur mun vilja forðast að mæta honum á vellinum eftir viðskipti þeirra síðasta haust. Þá lét Jökull bylmingsskot vaða af um 2 metra færi beint í miðstöðina á Hannesi með þeim afleiðingum að hann var frá keppni og æfingum í á annan mánuð og þurfti að leita sér læknisaðstoðar.
3. Ómar Ingi Ákason – 2 vikur
GG og KV mættust í hörkuleik á aðalvelli Grindavíkur fyrir nokkrum árum. Herforinginn á miðju KV á þeim tíma var Ómar Ingi Ákason. Hann varð fyrir smá hnjaski í leiknum og var frá í 2 vikur. Um 3 árum síðar er hann enn í strangri endurhæfingu. Ómar afrekaði það svo einnig að vera það svekktur á að vera meidur á hægri að hann sparkaði í ruslatunnu með vinstri og meiddi þá löpp einnig.
2. Jóhann Gunnar Þórarinsson – Slitin hásin
Jóhann hefur átt við ýmiss meiðsli í gegnum tíðina en verst voru þó “ég hljóp svo hratt að ég hrasaði og datt” meiðslin hans frægu í Akraneshöllinni um árið. Þá sleit kappinn hásin með þeim afleiðingum að ekki hefur slitnað slefið milli þeirra Carlosar síðan, en hinn síðarnefndi var víst sá eini á svæðinu sem trúði því að um raunveruleg meiðsli væri að ræða og er skv. orðum Jóhanns “miklu meiri maður en þið allir til samans!”.
1. Páll Kristjánsson – Kjálkabrot
Engin meiðslasaga úr Vesturbænum er klár fyrr en minnst hefur verið á líkamsárás Vilhjálms Vilhjálmssonar lögfræðings á Pál Kristjánsson hdl í Vesturbænum seint á fyrsta áratug aldarinnar. KV mætti þá Pungmennafélaginu Gullu í æfingaleik á KV Park. Páll fór í tæklingu af gamla skólanum og hafnaði Vilhjálmur með hnéð í smetti Páls með þeim afleiðingum að kjálkinn klofnaði og Páll missti nokkrar tennur. Hringt var á sjúkrabíl með Pál vælandi eins og litla stelpu. Strákurinn var skrúfaður og víraður saman og var ekki lengi að jafna sig. Í fyrsta leik sínum eftir meiðslin, gegn Hamri í Hveragerði, fékk Páll svo annað hökk í andlitið.
1 Comment »
Posted on March 11th, 2011 by Björn Berg in Tilkynningar
Vegna dularfullrar rýrnunar í byrgðum KV þurfum við að biðja alla þá sem fara norður að taka með sér svartar stuttbuxur.
Ef svo vill til að menn eiga slík klæði ekki til taka menn amk. svartar síðbuxur eða kvartbuxur.
2 Comments »