Author Archive

Síðasta æfingin fyrir leikinn gegn Hvöt er í kvöld kl. 20:00. Allir að mæta.

Comments Comments Off

Við getum hins vegar bara verið til kl. 22:15 og því þurfa menn að mæta tímanlega.

]]>

Comments Comments Off

Við unnum í gær sannfærandi 2-1  sigur á Reynismönnum í þriðju umferð deildarbikarins. Sigurinn færði okkur efsta sætið í riðlinum, þar sem við ætlum okkur að sjálfsögðu að vera áfram.

Við komumst í 1-0 undir lok fyrri hálfleiks með marki Björns Ívars úr vítaspyrnu, eftir að einn varnarmanna Reynir hafði handleikið knöttinn inn í teignum.

Staðan var 1-0 í hálfleik en mörkin hefðu getað verið fleiri.

Þeir jöfnuðu metin snemma í síðari hálfleik eftir að vörnin opnaðist frekar illa. Skömmu síðar vildu þeir fá vítaspyrnu en ágætur dómari leiksins sá ekki ástæðu til þess að flauta. Það var svo í okkar höndum að gera sigurmarkið og var þar á ferðinni Aron Steinþórsson með góðu skoti úr teignum. Reynismenn pressuðu okkur nokkuð það sem eftir lifði leiks. Þeir fengu nokkuð ódýra vítaspyrnu en Danni varði spyrnu þeirra alveg út við stöng. Vel gert hjá honum.

En leiknum lauk með 2-1 sigri okkar. Við stefnum að því að taka æfingaleik í næstu viku og fá þá þeir sem minna hafa spilað að spreyta sig. Næsta æfing er svo á morgun sunnudag kl. 17:45 á gervigrasinu. Hún verður búin fyrir 19:00. Minni þá sem eiga að dæma á sunnudaginn á sína leiki. Ég skil það alveg ef þeir mæta ekki á æfinguna.

Lið KV: Danni – Beggi, Dóri, Erik, Gummi – Siggi Max, Bívar (Tumi 85. mín), Steindór (Ásgeir 65. mín) – Aron, Arnar Steinn, Rúnar.

Ónotaðir varamenn: Haukur Harðar og Maggi Ægis.

-

PK

Comments Comments Off

Comments Comments Off

KV nældi sér í brons

KV nældi sér í brons

KV tryggði sér í kvöld þriðja sætið í 3. deild og þar með langbesta árangur í sögu félagsins.

Leikið var við Skallagrímsmenn frá Borgarnesi í hífandi roki í Breiðholti. Valde kom KV yfir snemma leiks með tánni eftir fína stungusendingu, en Borgnesingar jöfnuðu eftir hornspyrnu með skalla. Einar Óli kom okkur aftur yfir með góðum skalla, en enn misstum við forystuna niður eftir annan skalla í stöng og inn. Staðan var 2-2 (leiðrétt af Svenna stóð 2-0) í hálfleik og KV töluvert sterkari aðilinn með vindinn í bakið.

Í síðari hálfleik sóttu Skallagrímsmenn án afláts, ef frá er talin ein sókn þar sem Arnar Steinn var að sjálfsögðu mættur til að fylgja eftir skalla Eriks. Staðan orðin 3-2 og þannig hélst hún til leiksloka þrátt fyrir þunga sókn Borgnesinga og innkomu Páls Kristjánssonar. Páll fékk einungis að líta gult spjalt og verður sumarið 2009 því hans fyrsta í 8 ár sem hann hefur ekki í banni.

Við megum vera gífurlega stoltir af þessum frábæra árangri. Vissulega hefði verið gaman að fara upp í 2. deild en við sönnuðum að KV er að vaxa ár frá ári og er orðinn að einum sterkasta klúbbi 3. deildar. Stefnan verður klárlega sett beinustu leið upp á næsta ári og við fáum góða æfingu fyrir það í vetur þegar við leikum (held ég alveg örugglega) í B deild Deildarbikarsins.

Stjórn KV þakkar leikmönnum og öllum þeim fjölda sjálfboðaliða og velunnara sem stutt hafa liðið kærlega fyrir einkar ánægjulegt og árangursríkt sumar. Næst á dagskrá er árshátíð, stefnan er sett á 27. september, en það skýrist fljótlega.

Það hefur verið Björn Berg fyrir fckv.com

Comments Comments Off