Það var undarlegur leikur sem talsverður fjöldi áhorfenda varð vitni að á glæsilegum Vilhjálmsvelli á laugardaginn. Í upphafi lékum við 5-3-2 leikkerfi með þá Snorra og Dóra Árna uppi á topp. Dóri og Halldór Ágúst komust í hálffæri í upphafi leiks en í fyrstu sókn heimamanna skoruðu þeir eftir langt innkast. Nýting andstæðinga okkar úr föstum leikatriðum er farin að jafnast á við Clyde „the glyde“ Drexler í troðslum á sínum tíma.

Eftir markið sóttum við í okkur veðrið og mátti engu muna að klaufaskapur í vörn Hattar endaði með sjálfsmarki en léleg sending til baka fór í stöngina og Dóri Árna var örlítið of seinn að ná frákastinu. Um miðjan fyrri hálfleikinn lét Egill svo reka sig út af fyrir ergelsi þegar hann lá ofan á sóknarmanni Hattar. Sá gaf honum olnbogaskot sem dómarinn sá ekki og Egill hrinti honum þá í jörðina og var réttilega rekinn út af. Línuvörðurinn kallaði dómarann þá til sín og benti á að dæma ætti vítaspyrnu í leiðinni og þeir nýttu hana til að komast í 2-0. Fyrir lok hálfleiksins opnaðist vörnin okkar mjög illa vinstra megin og þeir fengu ókeypis færi sem var mjög vel klárað í nærhornið og staðan 3-0 í hálfleik. Þá hafði Björn Ívar m.a. svo gott sem handleggsbrotið markvörð Hattar með frábæru skoti og við átt 5-6 þokkaleg færi sem því miður tókst ekki að nýta.

Síðari hálfleikur var skiljanlega erfiður manni færri en menn eiga hrós skilið fyrir að vera duglegir að sækja og setja pressu á heimamenn sem hefði getað endað með mörkum. Það var þó Vilmar félagi okkar sem kom Hetti í 4-0 með fínu viðstöðulausu skoti áður en Ingvar skoraði með hörkuskalla eftir frábæra sendingu frá Njálssyni. Eskfirðingurinn fljúgandi þar með orðinn markahæstur KV manna á tímabilinu. Fallegasta sókn leiksins hefði mátt enda með marki en þar hafði Einar Njáls spólað sig úr vörninni fram allan völlinn, gaf á Snorra (með yfirburðum maður leiksins) sem hælaði hann aftur inn fyrir vörnina en skot Einars með vinstri rétt missti af Sammaranum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við töpum leik vegna þess að við missum mann út af . Heldur ekki í fyrsta skipti sem menn standa sig margir hverjir með prýði en koma heim tómhentir. Það sem ég vil þó taka út úr þessum leik er mun heldur jákvætt en neikvætt. Snorri var til fyrirmyndar og átti með betri leikjum sem KV maður hefur átt í sumar. Var á fullu í 90 mínútur, spilaði mjög einfaldan einnar eða tveggja snertinga bolta og högnuðust miðjumenn okkar mikið á því að geta fengið boltann aftur í uppbyggingu sókna. Einar Njáls var áberandi góður hægra megin og þeir Björn Ívar, Beggi og Halldór Ágúst eiga hrós skilið fyrir mikla baráttu á miðjunni. Að mínu mati bestu leikur Halldórs í sumar. Einar Óli vann sína 50 skallabolta og Danni greip oft vel inn í í markinu.

Annars er það að frétta af leikmönnum að Ari Gísla lék sinn fyrsta leik fyrir félagið og stóð sig vel vinstra megin, þó hann hafi verið ansi stífur eftir föstudagsæfinguna. Halldór Svavar lenti illa eftir samstuð og sleit að líkindum krossband. Við sendum honum okkar bestu kveðjur og finnum til með honum, enda er þetta í annað sinn sem krossband fer í vinstra hnénu.

Næsti leikur er á miðvikudagskvöldið gegn Víði. Nú er einfaldlega komin upp sú staða að menn verða hver og einn að hugsa um veru KV í 2. deild. Það tók 5 ár og mikla vinnu að komast hingað og hér vilja örugglega allir vera frekar en í 3. deild. Ef menn geta ekki gírað sig upp í leik gegn Víði, liði sem við höfum unnið áður og eigum að vinna, er eitthvað mikið að. Nú þurfa menn að rifja upp stemninguna í mestu baráttuleikjum KV og endurtaka leikinn.

Það hefur verið Björn Berg fyrir fckv.com

Comments are closed.