Málsvörnin „ég bý þó ekki í Sandgerði“ nær skammt eftir leikinn í gær. Það hefur fátt fallið með okkur það sem af er tímabili og engin breyting varð þar á að þessu sinni.
Aðstæður suður með sjó voru erfiðar, nokkuð stífur vindur (eins og við mátti búast), völlurinn laus í sér og hart undirlag. Þessir helstu voru mættir í stúkuna og fá heimamenn stóran þumal í loftið frá Vesturbæingum, frábær stemning.
Í upphafi leiks virkuðu varnir beggja liða nokkuð óöruggar og fyrsta færi leiksins leit dagsins ljós eftir að Njálsson og sóknarmaður Reynis runnu á grasinu inni í markteig, heimamenn náðu skoti að marki en Siðlaus stökk eins og lax upp í sammarann og hreinsaði í horn. Sóknarleikur okkar var mjög góður framan af og fóru þar fremstir í flokki Hreinn og Onni, sem fengu nægt pláss, en Björn Ívar stóð sig virkilega vel í að dreifa spilinu frá miðjunni. Litlu mátti muna nokkrum sinnum í efnilegum sóknum okkar en við komumst verðskuldað yfir seint í fyrri hálfleik þegar Hreinn þræddi netta sendingu inn fyrir á Valda sem kláraði færið vel og skoraði þar með sitt fyrsta af mörgum mörkum í 2. deild. Í hálfleik var staðan því 0-1 og við með ágætis tök á leiknum.
Í síðari hálfleik þéttum við nokkuð varnarleikinn og heimamenn sóttu í sig veðrið. Þeim gekk þó ekkert allt of vel að skapa sér færi og þeir Stebbi, Einar Óli og Siðlaus tóku nánast hvern einasta bolta sem barst inn í teiginn. Onni komst í okkar besta færi í hálfleiknum en var of seinn að skjóta eða senda boltann og sóknin fór út um þúfur. Suðurnesjamenn pressuðu mjög stíft á okkur síðasta hálftímann og voru orðnir mjög örvæntingarfullir. Leikur þeirra snérist að mjög miklu leiti um að öskra “hendi” og “víti” í hverri einustu sókn og var það leiðinlegur blettur á þessu annars fína liði að þeir hugsuðu álíka mikið um að fiska okkar menn út af og að skora mörk.
Þegar um 10 mínútu voru eftir fengu þeir svo aukaspyrnu á vítateigshorninu hægra megin sem þeir kláruðu mjög vel. Í kjölfarið fylgdu svo tvö mörk og við misstum því enn og aftur unninn leik niður í tap.
Við getum þó allir verið sammála um að þetta lið fær ekki einu sinni að anda að sér einu einasta stigi þegar þeir mæta í Vesturbæinn síðar í sumar. Nú erum við búnir með þrjá erfiðustu útileikina í deildinni, búnir að kynnast 2. deildinni betur og nú hefst sóknin. Við eigum kærkominn leik við ÍH á föstudaginn sem við ætlum að vinna og munum vinna.

Valde var með Kekic í vasanum
Entries (RSS)