Laugardaginn 8. maí tökum við Vesturbæingar á móti knattspyrnufélaginu Elliða í 1. umferð VISA bikarsins. 

Guðni Magnús Ingvason, ein skærasta stjarna utandeildarinnar, hefur sent okkur kynningu á félaginu svo við vitum aðeins betur hverju við megum eiga von á… 

 

Elliði

Finnur Kolbeinsson, leikmaður Elliða. Mynd: Vikingur.net

Knattspyrnufélagið Elliði var stofnað 1999 af nokkrum vöskum drengjum úr Árbænum.  Allt frá stofnári hefur félagið leikið í hinni gríðar sterku og skemmtilegu deild, Utandeildinni. Árangur liðsins hefur ekki verið af lakara taginu því á 10 árum hefur félagið landað 5 titlum.  Liðið varð meistari árin 2005 og 2007, bikarmeistari árin 2006 og 2009 og meistari meistaranna árið 2008. Þannig að síðustu 5 ár hefur félagi hampað titli í Utandeildinni. 

Félagið hefur einnig undanfarin ár tekið þátt í bikarkeppni KSÍ og náðist besti árangurinn í þeirri keppni árið 2008 þegar félagið sló út lið Ægis frá Þorlákshöfn í Þorlákshöfn 1-2  í fyrstu umferð og tapaði síðan naumlega 2-3 fyrir Reyni Sandgerði í annarri umferð. 

Það skal viðurkennast að leikmenn eru komnir nokkuð til ára sinna og mega kannski muna fífil sinn fegurri hvað það varðar en skort á hraða bæta menn upp með gríðarlegri reynslu. Meðalaldur liðsins er um 33 ár, sá yngsti 28 ára og sá elsti er um 60 ára gamall en hann er einmitt þjálfari liðsins og kallast af leikmönnum aldrei annað en nafninu „Gamli viðbjóðurinn“. Meðal  þekktra leikmanna má nefna Finn Kolbeinsson, Hrafnkel Helgason, Helga Áss Grétarsson,  Ólaf Sigurjónsson og fallegasta leikmann liðsins Snæbjörn Konráðsson. 

Fyrirliðinn er sköllóttur og heitir Guðmundur Anton Helgason. 

Lukkudýr liðsins er plastkindin EVA sem er ávallt með í för hvort sem það er á árshátíð, á aðalfundum eða öðrum viðburðum félagsins. Flestir leikmenn hafa á e-h tímapunkti átt í einhverskonar sambandi við Evu og það af ýmsum toga. Þess má geta að það hafa verið gerðar tvær stuttmyndir um æviskeið EVU 

  

Með kveðju 

Knattspyrnufélagið Elliði

Comments are closed.