Leikurinn gegn KFR er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur. Leikið verður á Hvolsvelli, þaðan sem við sóttum þrjú stig fyrr í sumar. 18. júlí mættu Rangæingar í heimsókn vestur í bæ þar sem við sigruðum 3-0 í leik þar sem gestirnir hefðu vel getað sett mörk í upphafi leiks.
Þeim hefur gengið þokkalega síðan þá og ljóst að við höfum engan vegin efni á neinu vanmati. Þeir lágu 2-4 heima fyrir KFS, sigruðu Ægismenn 3-2, töpuðu 0-1 fyrir Árborg og loks 3-0 fyrir Berserkjum á miðvikudaginn.
Hópurinn og ferðatilhögun verður sett á síðuna innan skamms.
Entries (RSS)