Það sló þögn á Vesturbæinn í morgun þegar fréttist af félagsskiptum Hlyns Valssonar í Augnablik. Hlynur hefur um nokkra hríð gert hosur sínar grænar fyrir Kópavoginum eins og meðfylgjandi mynd gefur glöggt til kynna.

Við búumst fastlega við að Hlynur sjái fljótlega að sér og snúi aftur, enda tónar svarti liturinn mun betur við húðlit hans en hvítt og grænt og er hann alltaf velkominn aftur.

KV þakkar mjög gott samstarf síðustu ár og óskar Hlyni og fjölskyldu velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Comments are closed.