Nú geta KV menn nær og fjær tekið gleði sína á ný, því upp er komið nýtt spjallborð. Spjallborðið er ekki alveg fullklárað, en menn geta þó komist á borðið núna, sem er staðsett á fckv.com/spjall og látið gamminn geysa. Þá geta menn líka fylgst með nýjustu þráðunum á spjallborðinu hérna til hægri.
Skráning er ekki nauðsynleg til að menn geti tjáð sig, en þó er mælt með því að sem flestir skrái sig.
Við stjórnarmenn hvetjum líka flesta til að koma skoðun sinni á framfæri hvað framkvæmd árshátíðarinnar varðar, sem er á næstunni, hvað menn vilja gera um daginn og fleira í þeim dúr.
Entries (RSS)