Við æfum laugardag og sunnudag. Leiknum við Reyni hefur verið frestað fram í lok næstu viku.

Æfingin á morgun verður kl. 15:30. Það verður tilkynnt á æfingu á morgun hvenær við æfum á sunnudag.

Comments No Comments »

Comments No Comments »

Óli í Smash segist ætla að fokking bösta sér leið inn í byrjunalið KV í sumar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í opinskáu viðtali helgarútgáfunnar við þennan efnilega leikmann. Í vikunni ætlum við að birta búta úr viðtalinu sem ratar svo á síðuna í heild sinni um helgina.

„…þetta var svona you better check yourself before you wreck yourself móment“.  Segir Óli ákveðinn þegar talað er um þær ótrúlegu framfarir sem hann hefur sínt undanfarin misseri. Þegar hann hendir fram báðum höndum í einu með baugfingur og löngutöng inni er ljóst að hann meinar hvað hann segir.

En hvaða skilaboð vill Óli senda til þeirra leikmanna KV sem koma til með að berjast við hann um pláss í liðinu? „hehe yo check it homes: To all yo peepz out there, you better watch out, the dog be barkin’, don’t let him bite!“

Að lokum er það svo hin klassíska spurning, hvað hlustar Óli á til að koma sér í rétt hugarástand fyrir baráttuna framundan? „hehe ég sendi það á þig, hentu því inn!“ Og hér er það að neðan.

Comments No Comments »

Við unnum nú í kvöld ágætan 3-2 sigur á Aftureldingu er kom í heimsókn í Frostaskjólin. Strax í upphafi leiks fengum við tvö ákjósanleg marktækifæri. Fyrst skaut Óli Már yfir úr teignum og þá vippaði Dabbi yfir markvörðinn sem og markið er hann slapp inn fyrir.

Um miðjan fyrri hálfleiks skoraði Dabbi örugglega úr vítaspyrnu eftir að Einar Bjarni féll í teignum eftir viðskipti við markvörðinn. Ágætur dómari leiksins, Oddur Helgi, var ekki í nokkrum vafa með ákvörðun sína, er var rétt.

Leikar stóðu 1-0 í hálfleik.

Gunni bætti við öðru marki okkar manna snemma í síðari hálfleik. Í kjölfarið gerðum við nokkra breytingar á liðinu en alls léku 17 leikmenn með í kvöld.

Við það riðlaðist nokkuð okkar leikur og gestirnir gengu á lagið. Þeir jöfnuðu svo leikinn 2-2 með tveimur sjálfsmörkum okkar manna. Áður hafði Danni varið vel vítaspyrnu.

Eftir jöfnunarmarkið tókum við öll völd á vellinum og Kalli tryggði okkur sigurinn með hælnum eftir hornspyrnu Dabba.

Óhætt er að segja að úrslit leiksins hafi verið sanngjörn. Við fengum ógrynni marktækifæra og þá aðallega þeir Dabbi og Gunni. Næsti leikur er svo á miðvikudaginn kemur á móti 2. fl. KR og svo annan laugardag fáum við Reyni Sandgerði í heimsókn.

Byrjunarlið KV (4-2-3-1): Danni – Maggi, Danni, Halldór Boga, Atli – Einar, Aron – Valdi, Dabbi, Óli Már – Gunni.

Varamenn: Óli Þór, Kalli, Gonni, Ingvar, Tihomir, Gummi.

Comments No Comments »

Comments No Comments »